LIND Fasteignasala kynnir: Sex herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr að Vogatungu 111 í Mosfellsbæ.Húsið afhendist á byggingastigi 6 - Fullbúið að innan og utan með grófjafnaðri lóð.
Áætluð afhending mars/apríl 2019 Hitakerfið er hefðbundið ofnakerfi sem verður frágengið. Í votrýmum og anddyri verður gólfhiti frágenginn með stýringum.
Baðherbergi: Gólf verða flísalögð og veggir verða að hluta með flísum frá Agli Árnasyni. Aðrir veggir verða grunnaðir og með tveimur myglufríum málningarumferðum.
Gólf verða frágengin með flísum á baðherbergjum, þvottahúsi og anddyri, en
harðparketi á öðrum rýmum. Hvoru tveggja verða frá
Agli Árnasyni.Hreinlætistæki: eru fullfrágengin frá Tengi.
Eldhústæki: Ormsson.
Innréttingar: AXIS skv. innréttingateikningum.
Innihurðir: Egill Árnason.
Húsin eru steinsteypt, byggð úr vottuðum forsteyptum einingum frá Smellinn. Útveggir eru steinaðir og sléttir að hluta.
Húsin eru staðsett í nýlegu fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbænum. Hinn nýlagði Tunguvegur tengir hverfið við íþróttamiðstöðina að Varmá, Varmárskóla og miðbæ Mosfellsbæjar.
Stutt í útiveru, gönguleiðir, upplýstan battavöll, körfuboltavöll, laxaveiði, hestamannahverfi Harðar, flugklúbb Mosfellsbæjar osfrv.
Sveitasæla í aðeins 15 mín keyrslu frá miðpunkti Reykjavíkur.
Heimsækja kynningarvef:
http://vogatunga.is/Nánari upplýsingar veita:
[email protected] eða
[email protected]