Sölusýning miðvikudaginn 4.12 milli kl 16:30 - 17:30, innréttingar komnar upp í íbúð 202 í Hafnarbraut 13A, Löggiltir fasteignasalar taka á móti áhugasömum. Afhendingar frá Desember 2019 - lok Mars 2020.
ATH: sýnum samdægurs bókaðu skoðun
Lind Fasteignasala kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir í mjög vönduðu fjölbýlishúsi á besta stað á Kársnesi. Íbúðirnar afhendast fullbúnar (án gólfefna) með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Bílastæði í upphituðum bílakjallara fylgir öllum íbúðum nema tveimur. Lyfta fer alla leið niður í bílakjallara. Kaupendur hafa vel um 4 gerðir af innréttingum í eldhúsi.
Gólfhiti á baðherbergjum. Húsið er klætt að utan og ál-tré gluggar og því viðhaldslítið og allir innveggir hlaðnir. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði í bílakjallara
Heimasíða fyrir Hafnarbraut 13-15Íbúð 402. Glæsileg 60,6 fm 4. hergergja íbúð á 1. hæð ásamt stæði í lokuðu bílastæðahúsi í fallegu og nýju lyftuhúsi í þessu nýja en rótgróna hverfi. Íbúðin afhendist með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Innréttingar frá HTH, hægt að hafa árhrif á litaval á innréttingu.
Íbúð 50,6 - Geymsla í kjallara 10 fm.
Frekari upplýsingar í skilalýsingu: sjá undir myndir.
Um er að ræða 54 íbúða fjölbýli með 5 stigagöngum á 4. hæðum ásamt kjallara í fallegu lyftuhúsi, húsið er í nýju skipulögðu hverfi á Kársnesi.
Blönduð byggð, vistvænar samgöngur, verslun og þjónusta verða áhersluatriði í uppbyggingu vestasta hluta Kársness. Samhliða uppbyggingu verður reist brú fyrir gangandi, hjólandi og almenningsvagna yfir Fossvog sem tengja mun svæðið við háskólasvæði Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands og miðbæ Reykjavíkur.
Lóð: Verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu arkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð og merkt.
Frekari upplýsingar veita Löggiltir fasteignasalar
Þorsteinn Yngason í síma 696-0226 / [email protected]
Magnús Már Lúðvíksson í síma 699-2010 / [email protected]
Hannes Steindórsson í sima 699-5008 / [email protected]
Lind Fasteignasala uppsprétta ánægjulegra viðskipta.