ÍBÚÐIR í NÝBYGGINGU SEM UPPFYLLA SKILYRÐI UM HLUTDEILDARLÁN
Lind fasteignasala kynnir til sölu 75,8 fermetra 3ja herbergja (þar af 5,8 fermetra geymsla) íbúð á 1. hæð, merkt 102, með sérinngangi og skjólgóðri verönd til suðurs í nýrri og afar fallegri 3ja hæða nýbyggingu við Dalsbraut 5 í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar veitir Heimir F. Hallgrímsson lögg. fasteignasali [email protected] eða í síma 849-0672.
Eignin skiptist í forstofu, barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og rúmgóðan sérafnotaflöt.
Um er að ræða 16 íbúða, 3ja hæða nýbyggingu með lyftu, í Reykjanesbæ þar sem íbúðir á jarðhæð eru með rúmgóðan sérafnotaflöt til suðvesturs og íbúðir á 2. og 3. hæð eru með rúmgóðar svalir til suðvesturs. Íbúðirnar eru 3ja - 4ra herbergja, vel skipulagðar og eru 75,1 fermetrar - 104,0 fermetrar að stærð. Sér geymsla fylgir hverri íbúð á jarðhæð. Íbúðunum verður skilað fullfrágengnum utan sem innan, þ.á.m. öllum gólfefnum og eldhústækjum.
Verð íbúða er frá kr. 32.900.000,-. Staðsetning er afar góð við Stapaskóla í Reykjanesbæ. Áætlaður afhendingartími er júní-ágúst 2021. Hönnuður er KRark ehf.
Íbúðirnar skiptast í forstofu, 1-2 barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og rúmgóðar svalir eða hellulagðar verandir á jarðhæð.
Upplýsingar veitir Heimir F. Hallgrímsson lögg. fasteignasali [email protected] og í síma 849-0672.BurðarkerfiSökklar og botnplata eru staðsteyptir. Útveggir, berandi innveggir, svalargólf og þakplötur eru forsteyptar einingar frá Steypustöðinni. Milliplötur eru filegranplötur frá Steypustöðinni og ásteypulag er c-30 járnbent steinsteypa frá Steypustöðinni. Stigar milli hæða eru úr forsteyptum einingum.
Frágangur utanhússÚtveggir eru eingangraðir og klæddir að utan með báruáli í flokki 2. Gluggar verða timbur- ál gluggar og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri. Svalahandrið eru úr stálprófílum.
Frágangur innanhússLéttir innveggir verða hlaðnir steinveggir. YTONG eða sambærilegt.
Innréttingar og skápar verða úr plastlögðu efni (melamin). Allar innréttingar eru frá HTH.
Innihurðir verða yfirfelldar (Ringo eða sambærilegt) hvítlakkaðar.
Heimilistæki, bökunarofn, helluborð og gufugleypir verða af vandaðri gerð frá AEG eða sambærilegt. Uppþvottavél og ísskápur verða frá Ormsson (AEG) eða sambærilegt.
Hreinlætistæki verða af vandaðri gerð. Á baði verður vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Blöndunartæki í sturtum verða utanáliggjandi.
Í eldhúsi verður stáleldhúsvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Viðmiðunartegund er grohe eða sambærilegt.
Vegg- og gólfflísar. Íbúðir verða afhendar fullbúnar með gólfefnum. Gólf í baðherbergjum og í þvottahúsum, þar sem við á, verða flísalögð ásamt hluta af veggjum baðherbergis.
Lyfjaskápur, reykskynjari og slökkvitæki fylgja hverri íbúð.
Frágangur sameignar og geymslnaGeymslur á jarðhæð fylgja öllum íbúðum. Gólf á geymslusvæði verða máluð. Geymsluveggir verða ýmist úr léttum steinveggjum frá Steypustöðinni eða sambærilegt, eða Axelent stálgrindarefni.
Lyfta verður í húsinu af viðurkenndri gerð. Svalagangur verður lokað að hluta með glerlokun.
Stigahús er teppalagt og svalagangar eru vélslípaðir.
LagnakerfiÍ íbúðum verða hefðbundnir vatnsofnar. Gluggalaus rými verða loftræst með vélrænni loftræstingu. Mótor fyrir loftræstingu verður staðsettur á þaki hússins.
RaflagnirRofar, tenglar og dósir eru staðsett í samræmi við raflagnateikningar. Ljósakúplar verða í hverju baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi og geymslum.
Allar íbúðir afhendast með einu dyrasímatæki.
Lýsing svalaganga, stigaganga og á svölum verður í samræmi við teikningar.
Frágangur lóðarÁ lóðinni eru 60 bílastæði (Dalsbraut 3-5) sem öll eru í óskiptri sameign allra íbúða á Dalsbraut 3 og Dalsbraut 5. Þrjú af þessum bílastæðum eru sérstaklega ætluð fötluðum, eitt fyrir framan Dalsbraut 5 og tvö fyrir framan Dalsbraut 3
Bílastæði eru malbikuð, afmörkuð með kantsteini og steyptum stoðvegg, að utanverðu en merkt með málningu. Lóð er að öðru leyti tyrft. Sérnotarými íbúða(pallar) á jarðhæð eru hellulögð með 30x30 hellum.